Orri Páll segir Vinstri-græn vilja verja almannaþjónustuna gagnvart aðhaldi líkt og gert er í þeim fjárlögum sem þingmenn eru þvert á alla flokka að fást við í þinginu, og ná vonandi að ljúka áður en að kosningum kemur. Til þess að geta staðið undir öflugri almannaþjónustu segir hann tekjuöflun nauðsynlega svo hægt sé að nota tilfærslukerfin til að styðja, á breiðum grundvelli, við fólk. Nefnir hann sérstaklega þau efnaminni í því sambandi.

Orri lýsir flokknum, sem hefur tapað miklu fylgi, sem stjórnmálaafli, alltaf staðsettu til vinstri, sem hafi lagt áherslu á frið, kvenfrelsi, umhverfis- og náttúruvernd og félagslegan jöfnuð. Hann áttar sig á að það er á brattann að sækja en segist eiga eftir að sjá það gerast að flokknum verði hafnað. „Við þurfum að sýna fram á hvers slags erindi við eigum og við erum aldeilis byrjuð á því.“