Vilhjálmur Helgi Pálsson fæddist 30. maí 1929. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Húsavík 28. október 2024.
Foreldrar hans voru Karólína Sigurgeirsdóttir, f. 23. september 1889, d. 28. október 1972, og Páll Jóhann Sigurjónsson, f. 11. júní 1886, d. 1. apríl 1973.
Vilhjálmur var yngstur fjögurra systkina. Hin voru: Ásgeir, f. 7. ágúst 1915, d. 26. júní 1931, Bjarney Sigrún, f. 1919, d. 2016, og Sigríður Soffía, f. 1923, d. 1985.
Vilhjálmur giftist Védísi Bjarnadóttur íþróttakennara 20. maí 1956. Börn þeirra eru: 1) Þorbjörg sérkennari, f. 24. júlí 1957. Sonur hennar er Vilhjálmur Þór Gunnarsson, f. 1988, maki hans er Kristín Björg Hrólfsdóttir og dóttir þeirra er Védís María, f. 2024. 2) Anna Karólína framkvæmdastjóri, f. 1959. 3) Bjarni Páll, íþróttakennari og ferðaþjónustubóndi, f.
...