Danmörk Ragnar stýrði karlaliði Fram undir lok tímabilsins 2023.
Danmörk Ragnar stýrði karlaliði Fram undir lok tímabilsins 2023. — Ljósmynd/Kristinn Steinn

Ragnar Sigurðsson tekur við þjálfun U17-ára liðs danska knattspyrnufélagsins AGF strax eftir áramót. Þetta tilkynnti danska félagið á samfélagsmiðlum sínum í gær. Eitt af hlutverkum Ragnars verður að aðstoða yngri leikmenn liðsins að taka næsa skref upp í aðallið félagsins. Miðvörðurinn þekkir vel til í Danmörku eftir að hafa leikið með FC Kaupmannahöfn frá 2011 til 2014 og þá á hann að baki 97 A-landsleiki fyrir Ísland.