Séra Hjálmar Jónsson kastar fram að gefnu tilefni: Donald veit ég vaskan mann með vissa galla og kosti. Sigraði Kamölu Harris hann og heimurinn er í losti. Þá Kristín Jónsdóttir: Kjöri Donald núna nær – naumt verður reyndar bilið

Pétur Blöndal

p.blondal@gmail.com

Séra Hjálmar Jónsson kastar fram að gefnu tilefni:

Donald veit ég vaskan mann

með vissa galla og kosti.

Sigraði Kamölu Harris hann

og heimurinn er í losti.

Þá Kristín Jónsdóttir:

Kjöri Donald núna nær

– naumt verður reyndar bilið.

Það er gott að þjóðin fær

það sem hún á skilið.

Friðrik Steingrímsson leggur orð í belg:

Téðu böli trú ég

...