Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar var í gær hress í Ísland vaknar og sagði að hún þyrfti aðeins fimm-sex tíma svefn á nóttunni; eiginleiki sem hún erfði frá föður sínum
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar var í gær hress í Ísland vaknar og sagði að hún þyrfti aðeins fimm-sex tíma svefn á nóttunni; eiginleiki sem hún erfði frá föður sínum. Hún nýtur þess að vakna snemma, setja í vélar og lesa. Þorgerður segist samt stundum finna fyrir aukinni svefnþörf með aldrinum en á auðvelt með að slaka á í bíl eða flugvél. Í gær var hún á leið um Vesturland og Vestfirði með grínistanum Jóni Gnarr og hlakkaði til samtala um lífið og tilveruna.
Spjallið við Þorgerði Katrínu er í heild sinni á K100.is.