Kristinn segir við systur sína: „Mig langar að gera eitthvað í sumarfríinu sem ég hef aldrei gert áður.“ „Taktu þá til í herberginu þínu!“

Þrjár leðurblökur fara í keppni. Sú leðurblaka vinnur sem snýr aftur mest útötuð í blóði. Sú fyrsta snýr aftur með þrjá blóðdropa á vængnum. Önnur leðurblakan snýr aftur með svipað magn af blóði á maganum. Eftir stutta stund kemur sú þriðja öll útötuð í blóði. Fyrri leðurblökurnar spyrja hissa: „Hvernig fórstu að þessu?“ „Sáuð þið tréð þarna fyrir utan?“ „Já.“ „Ekki ég … “

„Ég keypti þennan kött fyrir mánuði,“ kvartar Stína, „þú sagðir við mig að hann væri fullkominn fyrir mýs en hann hefur ekki ennþá veitt eina einustu mús!“ Starfsmaðurinn: „Já, er það ekki fullkomið fyrir mýsnar?“

Læknir: „Ástandið er slæmt! Þú ert með vökva í liðunum, kalk í æðunum og steina í nýrunum!“ Sjúklingurinn:

...