Tamara Lawrence leikur Millie Black.
Tamara Lawrence leikur Millie Black. — AFP/John Lamparski

Glæpir Í nýjum glæpamyndaflokki, Get Millie Black, fer Tamara Lawrence með hlutverk rannsóknarlögreglukonunnar Millie Black sem snýr aftur heim til Jamaíku til að vinna fyrir lögregluna í Kingston eftir að hafa verið hjá Scotland Yard í Bretlandi. Fyrsta málið er dularfullt mannshvarf og Black þarf að hafa sig alla við. Höfundur handrits er jamaíski rithöfundurinn Marlon James, sem hlaut Bookerverðlaunin 2014 fyrir skáldsögu sína A Brief History of Seven Killings en báðir foreldrar hans voru rannsóknarlögreglumenn. Af öðrum leikendum má nefna Gershwyn Eustache yngri og Joe Dempsie. Get Millie Black kemur inn á HBO-veituna 25. þ.m.