Arnljótur Sigurjónsson fæddist 17. október 1926. Hann lést 30. október 2024.

Útför fór fram 8. nóvember 2024.

Þegar ég hugsa til afa heitins Arnljóts kemur einungis hlýja upp í hugann. Þessi brosmildi, góðhjartaði og fróðleiksfúsi maður markaði djúp spor í líf þeirra sem þekktu hann hvað best.

Hvert sem maður fór og hvenær sem maður hitti hann féll maður alltaf aftur í hans hlýja faðm. Ég er svo heppinn að hafa upplifað þessa hlýju á Grenimel og Aflagranda en ég finn meira að segja hlýjuna á Hjarðarhóli í gegnum myndirnar.

Þrátt fyrir að hafa náð nær 100 ára aldri var hann alltaf með puttann á púlsinum. „Jói, ertu ekki búinn að sjá fréttirnar af Singapúr?“ – eða „Jói, þú skilur ekki þessa nanótækni. Þetta er framtíðin. Einn daginn

...