Eiríkur Bjarnason fæddist 9. ágúst 1946. Hann lést 23. október 2024.

Útför fór fram
4. nóvember 2024.

Mágur minn og vinur Eiríkur Bjarnason kvaddi okkur 23. október sl. eftir erfiða sjúkrahúsvist.

Aldrei heyrði ég hann kvarta enda tókst hann á við það sem að höndum bar alla tíð.

Fyrstu kynni okkar voru þegar Ásdís systir kynnti hann fyrir fjölskyldunni.

Eiríkur var frábær fagmaður bæði á járn og tré. Hann lærði vélvirkjun en vann lengst af við bifreiðaviðgerðir og oft leitaði ég til hans ef bíll bilaði. Síðustu árin stundaði hann rennismíði úr tré og gerði marga fallega hluti.

Við hjónin ferðuðumst oft með þeim Ásdísi og Eiríki bæði innanlands og utan. Síðasta ferðin var

...