Herdís Jónsdóttir fæddist 13. janúar 1924. Hún lést 28. september 2024.
Útför hennar fór fram 23. október 2024.
Dísa var góð vinkona foreldra okkar síðan á námsárum þeirra í Bandaríkjunum um miðbik síðustu aldar. Þessi vinskapur varð langvarandi og svo náinn með gagnkvæmum fjölskylduboðum að ég upplifði tengslin við börn Dísu á við frændsystkinatengsl. Vinskapurinn við Dísu og dætur hennar viðhélst og þróaðist, einnig eftir andlát foreldra okkar.
Það er ljóst að trygglyndi Dísu var lykilatriði í að viðhalda þessum nánu vinatengslum. Þegar fór að halla undan heilsu móður okkar þá hélt Dísa áfram að heimsækja hana reglulega allt fram á hennar dauðadag.
Dísa var einstaklega hlý manneskja sem sýndi okkur systkinunum áhuga. Það var þess vegna alltaf gott að koma
...