Örn Baldursson fæddist 28. maí 1945. Hann lést 26. október 2024.

Útför hans fór fram 8. nóvember 2024.

Síðasta laugardagsmorgun hringdi ég í Örn mág minn til að kanna hvort hann ætti ekki græna derhúfu til að lána barnabarni fyrir hrekkjavöku. Lísa systir mín svaraði og sagði að Örn hefði látist þá um nóttina.

Þannig voru samskipti okkar Arnar alla tíð. Við leituðum hvor til annars hvenær sem var. Gott var að leita til hans ef upplýsingar vantaði um t.d. nýjungar í símamálum, eitthvað úr tónlistarheiminum eða ef manni tókst ekki að finna eitthvað á netinu. Það sem einkenndi Örn var að hann kynnti sér til hlítar öll þau mál sem hann fékk áhuga á. T.d. komum við Ragga oft til þeirra Lísu á Vesturgötuna til að hlusta á tónlist, því plötusafnið var stórt og fjölbreytt. Ólíkt okkur hinum, sem létu nægja

...