Margrét Stefanía Þórarinsdóttir fæddist 3. janúar 1942. Hún lést 3. október 2024.
Útför hennar fór fram 18. október 2024.
Ég minnist ömmu minnar með hlýju í hjarta. Það eru margar minningar sem koma mér upp í huga þegar ég hugsa til þín og er ég ævinlega þakklát að hafa átt þessar góðu stundir með þér.
Ég hugsa fyrst um öll þau skipti sem ég gisti sem barn hjá ykkur afa. Það var nefnilega oftast sama uppskriftin að þessum heimsóknum. Kvöldið byrjaði á mat að mínu vali og því næst spiluðum við Super Mario allt kvöldið. Ég man alltaf hvað mér fannst mikil forréttindi að fá að spila með ömmu minni tölvuleiki, þar sem ekki allar ömmur gerðu það.
Amma var nefnilega tilbúin að gera allt fyrir mig. Ég átti það til sem krakki að baka heima hjá ömmu nema mér
...