Anna Pálsdóttir fæddist 24. október 1952. Hún lést 8. október 2024.
Útför hennar fór fram 22. október 2024.
Ég get ekki enn trúað því að elsku yndislega Anna sé fallin frá. Það er óskiljanlegt, mig svíður í hjartað. Hún Anna með fallega brosið, sem aldrei talaði illa um neinn, vinur vina sinna, eldklár og með svo skemmtilegan húmor. Hún átti svo margt eftir. Yndislega fjölskyldan hennar og barnabörnin sem hún dáði.
Við hjónin kynntumst árið 1977 þegar Óskar og Ingi fóru að vinna saman. Ég gleymi aldrei gleðinni þegar vitað var að þau áttu von á honum Palla og síðan Hjördísi. Þær eru svo margar gleðistundirnar á liðnum árum með þeim. Hvort sem við fórum saman í ferðalög innanlands eða hittumst yfir kaffibolla, þá var alltaf gaman hjá okkur.
Við hjónin héldum
...