Inga Dadda Karlsdóttir fæddist 21. ágúst 1954. Hún lést 5. október 2024.
Útför hennar fór fram 23. október 2024.
Mig langar til að senda minni góðu konu, vinkonu sem og barnsmóður mínar bestu kveðjur með þökk fyrir góð kynni en við kynntumst fyrir u.þ.b. 50 árum. Við kynntumst í gegnum minn besta vin Þorra í Akurgerðinu og Gurrý bestu vinkonu Ingu úr Meðalholtinu í Reykjavík.
Vinskapur myndaðist og framan af þreifuðum við á hugsanlegu sambandi sem hófst svo skemmtilega í Skíðaskála IK í Skálafelli um veturinn 1973. Upp frá því vorum við mikið saman og mikið á heimilum hvort annars, hvort heldur í Akurgerðinu eða hjá Sellu tengdó í Bogahlíðinni, sem tók mér mjög vel og urðum við strax mestu mátar.
Samband okkar og lífið þróaðist svo þannig að við Inga giftum
...