Markahæst Elín Klara Þorkelsdóttir var markahæst hjá Haukum.
Markahæst Elín Klara Þorkelsdóttir var markahæst hjá Haukum. — Morgunblaðið/Óttar

Haukar höfðu betur gegn Selfossi, 27:24, á útivelli í úrvalsdeild kvenna í handbolta í gærkvöldi. Haukar eru í öðru sæti með tólf stig, fjórum stigum á eftir toppliði Vals. Selfoss er í fjórða sæti með sex stig. Í stöðunni 20:20 kom flottur kafli hjá Haukum, sem skoruðu sjö af ellefu síðustu mörkunum og fögnuðu sigri. Elín Klara Þorkelsdóttir var markahæst hjá Haukum með átta mörk. Hulda Hrönn Bragadóttir skoraði átta mörk fyrir Selfoss.