Þónokkur orð tíðkast aðeins í fleirtölu. Fáein: Hjólbörur, skæri, jól, mistök, mæðgur og tónleikar. Þá er ekki hægt að tala um eitt af hverju heldur verða þetta einar hjólbörur, ein skæri, jól og mistök, einar mæðgur og einir…

Þónokkur orð tíðkast aðeins í fleirtölu. Fáein: Hjólbörur, skæri, jól, mistök, mæðgur og tónleikar. Þá er ekki hægt að tala um eitt af hverju heldur verða þetta einar hjólbörur, ein skæri, jól og mistök, einar mæðgur og einir tónleikar. Síðan tvenn, þrenn og fern. Þegar kemur að fimm mæðgum linnir þessari málþraut loks.