Ted Danson er með augun hjá sér.
Ted Danson er með augun hjá sér. — AFP/Lisa O’Connor

Njósnir Ted Danson hefur víða komið við á löngum ferli en leikur nú í fyrsta sinn mann sem gerist njósnari á dvalarheimili fyrir aldraða í myndaflokknum A Man on the Inside vegna gruns um að vistmenn séu beittir harðræði. Byggt er á sönnum atburðum sem fjallað er um í sílesku verðlaunaheimildarmyndinni The Mole Agent frá 2020. Danson leikur ekkil á eftirlaunum í San Francisco sem veit ekki hvað hann á við tímann að gera. Fyrir vikið gefur hann sig fram þegar auglýst er eftir njósnara (já, það var auglýst!) til að lauma sér inn á téð dvalarheimili og komast til botns í málinu. A Man on the Inside kemur inn á Netflix-streymisveituna 21. nóvember.