Þóra Hildur Jónsdóttir fæddist 25. júní 1950. Hún lést 12. febrúar 2024.
Útför Þóru Hildar fór fram 14. mars 2024.
Elskuleg kær vinkona er fallin frá eftir erfið veikindi, langt um aldur fram. Missirinn er mestur hjá Steina og fjölskyldunni og vottum við þeim öllum innilega samúð. Kynni okkar Þóru eru orðin býsna löng eða síðan hún stelpuhnáta horfði á Brynjar frænda sinn eins árs sofa miðdegislúrinn og vék ekki frá honum fyrr en hann vaknaði. Ekki svo mörgum árum seinna, þegar Steini var kominn inn í myndina, eignuðumst við þau sem vini fyrir lífstíð og aldrei hefur borið skugga á þá vináttu. Samverustundirnar urðu margar bæði norðan og sunnan heiða. Samverustundunum fækkaði því miður seinni ár, en sambandið alltaf gott og breyttist ekkert.
Elsku Þóra, við þökkum þér og Steina fyrir vináttuna og
...