Dagur einhleypra eða „Singles Day“ á enska tungu er í dag, hinn 11.11., með tilheyrandi afsláttum og tilboðum. Ákváðu margar verslanir að taka forskot á sæluna og buðu einnig afslætti af vörum sínum um helgina
Kringlan Mikið er um tilboð vegna „dags einhleypra“ sem er í dag.
Kringlan Mikið er um tilboð vegna „dags einhleypra“ sem er í dag. — Morgunblaðið/Hari

Guðrún S. Arnalds

gsa@mbl.is

Dagur einhleypra eða „Singles Day“ á enska tungu er í dag, hinn 11.11., með tilheyrandi afsláttum og tilboðum. Ákváðu margar verslanir að taka forskot á sæluna og buðu einnig afslætti af vörum sínum um helgina.

Flest tilboð dagsins eru í netverslun og segir Baldvina Snælaugsdóttir markaðsstjóri Kringlunnar að Kringlan styðji við þær verslanir sem taka þátt í deginum, bæði með auglýsingum og með því að bjóða upp á fría heimsendingu á öllum kaupum

...