Við störf Atvinnulausir á landinu öllu voru 7.487 talsins í lok október.
Við störf Atvinnulausir á landinu öllu voru 7.487 talsins í lok október. — Morgunblaðið/Eyþór

Skráð atvinnuleysi á landinu jókst lítið eitt í seinasta mánuði og mældist 3,4% en það var 3,3% í septembermánuði. Vinnumálastofnun (VMST) spáir því að atvinnuleysi verði á bilinu 3,4% til 3,6% í nóvember.

Stofnunin birti mánaðarlegt yfirlit yfir vinnumarkaðinn í gær þar sem kemur fram að 7.035 einstaklingar voru að meðatali atvinnulausir í október, 3.979 karlar og 3.056 konur. Fjölgaði þeim um 250 að jafnaði frá mánuðinum á undan.

Atvinnuleysið var mest á Suðurnesjum í október eða 5,9% og jókst atvinnuleysi þar milli mánaða eða úr 5,6% í september. Var atvinnuleysi karla á Suðurnesjum 5,7% en atvinnuleysi kvenna 6,3%.

Atvinnuleysi jókst alls staðar á landinu í október frá mánuðinum á undan nema á Vesturlandi og á höfuðborgarsvæðinu þar sem það stóð í stað. Ef litið er

...