Söngvarinn Eyfi Kristjáns hafði sambærileg matarplön og þáttastjórnendur Skemmtilegri leiðarinnar heim, Ásgeir, Regína og Jón Axel, á dögunum. Þau ætluðu öll að elda lasagna í kvöldmat. Eyfi og Ásgeir voru þó ekki á einu máli um hver gerði besta…
— Morgunblaðið/Styrmir Kári

Söngvarinn Eyfi Kristjáns hafði sambærileg matarplön og þáttastjórnendur Skemmtilegri leiðarinnar heim, Ásgeir, Regína og Jón Axel, á dögunum. Þau ætluðu öll að elda lasagna í kvöldmat. Eyfi og Ásgeir voru þó ekki á einu máli um hver gerði besta lasagnað, en báðir voru sannfærðir um að eiginkonur þeirra ættu þann titil. „Það verður lasagna hjá minni konu,“ sagði Eyfi kíminn og bætti við að þau kölluðu réttinn „La Sonja“. Regína spurði þá glettnislega: „Er það ekki La Sandra?“ – þar sem eiginkona Eyfa heitir Sandra. Nánar á K100.is.