Landsliðskonan Sædís Rún Heiðarsdóttir skoraði fyrsta mark Noregsmeistara Vålerenga á Arna-Björnar, 3:1, í Bergen á laugardag í næstsíðustu umferð norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Hún lék allan leikinn.

Í sömu deild lagði Ásdís Karen Halldórsdóttir upp mark fyrir Lilleström er liðið gerði jafntefli við Åsane á heimavelli, 1:1. Ásdís lék allan leikinn með sínu liði.

Birkir Bjarnason skoraði og lagði upp fyrir Brescia í 3:2-tapi liðsins gegn Cozensa í ítölsku B-deildinni á laugardag. Birkir lék seinni hálfleikinn með Brescia og skoraði á 77. mínútu og lagði upp á lokamínútunni.

Sævar Atli Magnússon gerði fyrra mark Lyngby er liðið gerði jafntefli, 2:2, gegn Aalborg í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær.

...