Þorsteinn Haraldsson fæddist 2. desember 1949 í Reykjavík. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi 1. nóvember 2024.
Foreldrar Þorsteins voru Haraldur Þorsteinsson húsasmíðameistari í Reykjavík, f. 23.5. 1923, d. 5.10. 2010, og Aðalheiður Sigurðardóttir hárgreiðslukona í Reykjavík, f. 21.12. 1925, d. 9.5. 2010. Börn þeirra hjóna og systkini Þorsteins eru: Sigurður viðskiptafræðingur og saltfiskútflytjandi, f. 30.3. 1948, d. 5.6. 2014, maki Jóna Guðjónsdóttir skrifstofumaður, f. 27.7. 1949; Ingibjörg fjármálastjóri, f. 20.1. 1953, maki Sturla Þorsteinsson kennari, f. 15.5. 1951; Ástráður ríkissáttasemjari, f. 27.8. 1961, maki Eyrún Finnbogadóttir kennari, 27.5. 1964.
Hinn 11. nóvember 1972 giftist Þorsteinn eftirlifandi eiginkonu sinni, Láru V. Júlíusdóttur hæstaréttarlögmanni, f. 13.4. 1951. Þau hafa verið búsett í Melbæ
...