Aðalstefnumál Ábyrgrar framtíðar er að gera upp covid-tímann en framboðið býður eingöngu fram í Reykjavíkurkjördæmi norður. „Við erum að knýja á að þetta verði skoðað, skoðað gagnrýnum augum, svo það sem við gerðum þarna verði aldrei…
Aðalstefnumál Ábyrgrar framtíðar er að gera upp covid-tímann en framboðið býður eingöngu fram í Reykjavíkurkjördæmi norður.
„Við erum að knýja á að þetta verði skoðað, skoðað gagnrýnum augum, svo það sem við gerðum þarna verði aldrei endurtekið,“ segir Jóhannes og leggur áherslu á að fortíðin gleymist ekki.
Þá telur Jóhannes að heilbrigðiskerfið sé að mörgu leyti brotið.
„Við viljum að það verði algjört skilyrði þegar fólk er að fá lyf, sérstaklega tilraunalyf, að það sé upplýst samþykki, það sé upplýst um alla áhættu sem það er að taka með heilsu sína.“
Auk uppgjörs á covid-tímanum leggur Ábyrg framtíð áherslu á ábyrga stjórnsýslu og að sparað verði í ríkisrekstri. Telur Jóhannes meðal annars að hætta eigi við lagningu Sundabrautar.