Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta vann afar sætan sigur á því rúmenska, 77:73, í undankeppni Evrópumótsins í Ólafssal á Ásvöllum í Hafnarfirði í gærkvöldi. Danielle Rodriguez skoraði sigurkörfuna um átta sekúndum fyrir leikslok með glæsilegri þriggja stiga körfu. Hún fékk víti að auki og skoraði því stigin fjögur sem skildu liðin að í einni og sömu sókninni. » 30