Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar er ánægður með fjárhagsáætlunina hjá sveitarfélaginu fyrir næsta ár. Góð þjónusta verði veitt og fjárhagurinn sé traustur á sama tíma.
„Tveir þættir skipta mestu máli í því. Fjárhagsáætlun fyrir yfirstandandi ár var mjög aðhaldssöm hjá okkur. Við erum að vinna í hagræðingu sem við sjáum að er að skila sér. Við njótum þess einnig að hafa lagt mikið í þjónustuna undanfarin ár hvað varðar útgjöld en tekjurnar vegna íbúafjölgunar eru að styrkjast núna,“ segir Almar en í sveitarfélaginu eru nú rúmlega 20 þúsund manns með lögheimili.
„Fjölgunin í bænum hefur verið töluvert mikil og útgjöld og tekjur hækka þar af leiðandi. Útgjöldin sem því fylgja hafa verið minni síðustu mánuðina
...