1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. e3 b6 5. Rge2 Ba6 6. a3 Be7 7. Rf4 d5 8. b3 0-0 9. Bd3 Bb7 10. 0-0 c5 11. cxd5 cxd4 12. exd4 Rxd5 13. Rcxd5 Bxd5 14. Rxd5 exd5 15. Bf4 Rd7 16. Df3 Rf6 17. a4 Bd6 18. Be5 He8 19. Df5 Re4 20. Bxe4 dxe4 21. Dxe4 Bb4 22. Dc6 Hc8 23. Db5 Bc3 24. Had1 f6 25. Bf4 He4 26. Be3 Dd6 27. Hc1 Hee8
Staðan kom upp í efstu deild fyrri hluta Íslandsmóts skákfélaga sem lauk fyrir skömmu í Rimaskóla. Stephan Briem (2.188) hafði hvítt gegn Sverri Erni Björnssyni (2.091). 28. Hxc3! og svartur gafst upp enda manni undir. EM í opnum flokki stendur yfir þessa dagana í Petrovac í Svartfjallalandi og taka nokkrir íslenskir titilhafar þátt í mótinu en margir af öflugustu skákmönnum Evrópu eru á meðal keppenda, svo sem eins og Jorden Van Foreest. Nánari upplýsingar um gang mála má finna á skak.is.