Åge Hareide, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, hefur neyðst til að gera tvær breytingar á leikmannahópnum fyrir leikina gegn Svartfjallalandi og Wales dagana 16. og 19. nóvember í Þjóðadeildinni. Mikael Neville Anderson, AGF, og Hlynur Freyr Karlsson, Brommapojkarna, hafa báðir dregið sig úr hópnum vegna meiðsla. Andri Fannar Baldursson, Elfsborg, og Rúnar Þór Sigurgeirsson, Willem II, koma inn í þeirra stað.