Heimsþing kvenleiðtoga hófst í Hörpu í gær og heldur áfram í dag en áætlað er að rúmlega 400 alþjóðlegir kvenleiðtogar hafi lagt leið sína til Reykjavíkur til að taka þátt. Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, lét sig að sjálfsögðu ekki vanta.
Niðurstöður Reykjavík Index for Leadership 2024 voru kynntar á þinginu í samstarfi við rannsóknarfyrirtækið Verian. Mælingin metur afstöðu almennings í ólíkum löndum til kvenna og karla í leiðtogastöðum, en Ísland er framsæknasta land heims hvað varðar traust til kvenna í leiðtogastöðum samkvæmt mælingunum.
Framkvæmdastjóri Verian, Michelle Harrison, kynnti niðurstöðurnar og sagði traustið engu að síður fara minnkandi, líkt og á alþjóðavísu. Lækkunina megi meðal annars rekja til fordómafyllri og íhaldssamari viðhorfa jafnvel yngri kynslóða til kynjahlutverka og kynjaskiptingar á vinnumarkaði.