Elfa Ólafsdóttir markaðsstjóri Helix hefur verið tilnefnd til Nordic Women in Tech-verðlaunanna sem eru veitt til að varpa ljósi á árangur kvenna í tæknigeiranum á Norðurlöndum. Elfa er tilnefnd í flokknum „Framtak ársins“ þar sem einstaklingar eða fyrirtæki eru heiðruð sem sýna mikilvægi kvenna í tæknigeiranum í gegnum kennslu, þjálfun, eða markaðsherferðir.
Elfa er markaðsstjóri Helix þar sem hún stýrir stefnumótun og markaðsmálum vörumerkisins. Hún er hjúkrunarfræðingur að mennt og er einnig með meistaragráðu í alþjóðamarkaðssetningu frá Emerson College í Boston. Í umsögn frá aðstandendum Nordic Women in Tech verðlaunanna er sagt að Elfa nýti vel reynslu sína úr hjúkrun og markaðsfræðum og að hún vinni að framförum og nýsköpun í íslensku heilbrigðiskerfi.
„Kvenfyrirmyndir í tæknigeiranum eru gríðarlega mikilvægar og sérstaklega er mikilvægt að efla konur í leiðtogahlutverkum innan tæknifyrirtækja. Við hjá Helix erum mjög stolt af
...