Þorsteinn Aron Antonsson leikmaður Vals hefur verið kallaður inn í leikmannahóp íslenska U21-árs landsliðsins í knattspyrnu fyrir vináttuleik gegn Póllandi á Spáni um næstu helgi. Þorsteinn Aron kemur í hópinn í stað Hlyns Freys Karlssonar sem var…
Vörn Þorsteinn Aron Antonsson er nýliði í U21-árs landsliði Íslands.
Vörn Þorsteinn Aron Antonsson er nýliði í U21-árs landsliði Íslands. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Þorsteinn Aron Antonsson leikmaður Vals hefur verið kallaður inn í leikmannahóp íslenska U21-árs landsliðsins í knattspyrnu fyrir vináttuleik gegn Póllandi á Spáni um næstu helgi. Þorsteinn Aron kemur í hópinn í stað Hlyns Freys Karlssonar sem var um helgina kallaður inn í A-landsliðshópinn en þurfti svo í dag að draga sig úr honum vegna meiðsla. Hann lék með HK að láni frá Val á nýafstöðnu tímabili og er nýliði í U21-árs landsliðinu.