30 ára Bóel er Reykvíkingur, ólst upp í Grafarvogi og býr í Vesturbænum. Hún er með BA-gráðu í fornleifafræði frá Háskóla Íslands og er sérfræðingur safneignar á Hönnunarsafni Íslands. Áhugamálin eru lestur og prjónaskapur.


Fjölskylda Kærasti Bóelar er Ari Brynjarsson, f. 1996, kennari. Foreldrar Bóelar eru hjónin Anna Kristín Birgisdóttir, f. 1964, vinnur í Landsbankanum, og Ingi Ólafsson, f. 1965, vinnur í vitaflokki Vegagerðarinnar, búsett í Grafarvogi. Bróðir Bóelar er Birgir Hrafnar Ingason, f. 1997, og vinnur sem málari, búsettur í Grafarvogi.