Ríflega 3.800 fleiri erlendir ríkisborgarar fluttu til Íslands fyrstu níu mánuði ársins en fluttu þá frá landinu. Hins vegar fluttu 70 fleiri íslenskir ríkisborgarar frá landinu á sama tímabili en fluttu til landsins.
Að óbreyttu stefnir í að þetta verði 18. árið á öldinni þar sem fleiri íslenskir ríkisborgarar flytja frá landinu en til þess. Með því heldur samsetning þjóðarinnar áfram að breytast. » 10