Landsliðsmaðurinn Dagur Dan Þórhallsson kann afar vel við sig í Flórída þar sem hann leikur með Orlando í bandarísku atvinnumannadeildinni í fótbolta. Þar hefur hann spilað mjög vel að undanförnu og er liðið komið í undanúrslit Austurdeildarinnar í baráttunni um bandaríska meistaratitilinn. „Lífið er hrikalega gott í Flórída. Maður vaknar á morgnana og sér sólina úti og lífið verður betra,“ sagði hann m.a. við Morgunblaðið. » 22