Knattspyrnumaðurinn Axel Óskar Andrésson hefur rift samningi sínum við KR. Axel Óskar, sem er 26 ára gamall, gekk til liðs við KR-inga fyrir síðasta keppnistímabil. Hann lék 21 leik með liðinu í Bestu deildinni á síðustu leiktíð og skoraði í þeim tvö mörk en KR hafnaði í 8. sæti deildarinnar. Miðvörðurinn, sem er uppalinn hjá Aftureldingu, á að baki tvo A-landsleiki fyrir Ísland og 46 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.