Baldur Þór Baldursson fæddist 19. mars 1961. Hann varð bráðkvaddur 28. október 2024.

Útför Baldurs fór fram 11. nóvember 2024.

Elsku Baldur.

Ég hefði aldrei trúað því að ég sæti núna við tölvuna að skrifa minningargrein um þig og verð að viðurkenna að ég er gjörsamlega tóm. Þegar ég fékk símtalið um að þú værir dáinn dó eitthvað inni í mér. Þetta var eitthvað sem ekki átti að geta gerst. Þú varst einn minn besti vinur fyrir utan að vera faðir fjögurra barna minna og afi fimm barnabarna. Alltaf tilbúinn að koma og aðstoða „kellinguna“, því ég var jú löngu orðin „kelling“ en þú alltaf sama „unglambið“ að eigin mati.

Við bjuggum saman í 15 ár og var líf okkar í raun og veru eins og endalaus rússíbanaferð … upp og

...