Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með haustdagskrá sína með tónleikum í kvöld, miðvikudagskvöldið 13. nóvember, kl. 20 á Björtuloftum Hörpu. Segir í tilkynningu að á tónleikunum komi fram kvartett bassaleikarans Þorgríms Jónssonar en Þorgrímur sé…

Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með haustdagskrá sína með tónleikum í kvöld, miðvikudagskvöldið 13. nóvember, kl. 20 á Björtuloftum Hörpu. Segir í tilkynningu að á tónleikunum komi fram kvartett bassaleikarans Þorgríms Jónssonar en Þorgrímur sé djassáhugamönnum að góðu kunnur og hafi leikið með rjóma íslenskra tónlistarmanna um árabil. „Á þessum tónleikum mætir hann með kvartett sinn sem stóð að útgáfu hljómplötunnar Haga.“