Lárus Þór Ragnarsson fæddist 18. apríl 1964. Hann lést lést 16. október 2024.
Útför hans fór fram 7. nóvember 2024.
Það er skrítið og erfitt að setjast niður og skrifa kveðju til æskuvinar og félaga sem féll frá allt of ungur.
Lárus Þór Ragnarsson eða Lalli eins og flestir kölluðu hann var góður vinur og þó að sambandið hafi kannski ekki verið eins mikið síðustu ár, þá var alltaf eins og við hefðum hist í gær.
Þegar maður elst upp í litlu bæjarfélagi eins og Hveragerði þá eignast maður vini og félaga sem fylgja manni alla tíð. Lalli var einn af þeim og þess vegna eru minningarnar margar.
Við erum búin að sitja og rifja upp svo margt skemmtilegt sem var brallað og allar stundirnar sem við áttum saman í gegnum árin. Við
...