Margeir Pétursson hefur mikla þekkingu á úkraínska hagkerfinu.
Margeir Pétursson hefur mikla þekkingu á úkraínska hagkerfinu. — Morgunblaðið/Karítas

Margeir Pétursson, bankamaður og stórmeistari í skák, kveðst bjartsýnn á efnahagslega endurreisn Úkraínu þegar stríðinu lýkur. Bankinn sem hann starfar hjá, Bank Lviv í samnefndri borg, hafi vaxið hratt í ár með stuðningi erlendra sjóða.

Gæti þvingað Pútín að borðinu

Bandaríkjastjórn hefur verið helsti bakhjarl Úkraínu í stríðinu við Rússa en í febrúar verða þrjú ár liðin frá upphafi stríðsins. Með því styttist í að stríðið hafi staðið yfir jafn lengi og Kóreustríðið 1950-1953 og er eyðileggingin og mannfallið eftir því mikið.

Donald Trump hefur verið kjörinn forseti Bandaríkjanna en hann hefur ítrekað gefið til kynna að hann myndi sem forseti ljúka Úkraínustríðinu með samningum. Spurður hvort Úkraínumenn taki Trump trúanlegan segir Margeir að margir þeirra sjái tækifæri í stöðunni.

...