Katrín Sigurgeirsdóttir fæddist 26. desember 1944. Hún lést 4. nóvember 2024.

Útför Katrínar fór fram 11. nóvember 2024.

Hún Kata tengdamóðir mín var einstök kona. Hjarta hennar var barmafullt af kærleika og hlýju sem hún dreifði til sinna nánustu. Hún var okkar stoð og stytta í einu og öllu og ef eitthvað bjátaði á var hún umsvifalaust komin til aðstoðar. Þessi glæsilega kona var ekki há í loftinu en á henni sannaðist að margur er knár þótt hann sé smár. Hún var röggsemin uppmáluð og leysti málin á sinn hljóðláta og yfirvegaða hátt. Rósemi hennar og hlý nærvera megnaði oft að bæta svo margt í lífsins ólgusjó. Kata var víðlesin og það var fátt sem hún ekki vissi. Það var aldrei komið að tómum kofunum hjá henni hvort sem um var að ræða tungumálin, landafræði eða sögu.

Tengdaforeldrar mínir komu oft

...