Þjóðadeild Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins.
Þjóðadeild Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu byrjar á útileik gegn Sviss þegar keppni í 2. riðli A-deildar Þjóðadeildar Evrópu hefst í febrúar.

Leikurinn gegn Sviss fer fram 21. febrúar og þá tekur við útileikur gegn Frakklandi 25. febrúar.

Í kjölfarið spilar Ísland heimaleiki gegn Noregi 4. apríl og Sviss 8. apríl.

Þann 30. maí fer Ísland í heimsókn til Noregs og fær að lokum Frakkland í heimsókn 3. júní.