Opnun sýningarinnar 100 fer fram í dag, fimmtudaginn 14. nóvember, klukkan 18 til 20 í Litla Gallerýi (LG), Strandgötu 19 í Hafnarfirði.
Yfirskrift sýningarinnar vísar til eitthundraðasta sýningarviðburðar LG frá upphafi og segir í tilkynningu að fyrsta sýningin hafi verið haldin 12. september árið 2019 til minningar um Ketil Larsen og því sé sýningarrýmið fimm ára á þessu ári.
„Á sýningunni er viðburðaröð LG rakin frá upphafi og öllum sýningum gerð skil með uppsetningu á sjónrænu auðkenni með vísan í sýningartexta ásamt QR-kóða sem tengir sýningargesti við myndefni viðkomandi sýningar. Með þessu langar okkur að heiðra myndlistarfólk, gefa sýningargestum innsýn í það starf sem átt hefur sér stað á tímabilinu, varpa ljósi á þann fjölbreytta hóp innlends og erlends myndlistarfólks sem sýnt hefur í rýminu – en ekki
...