Garðabær Birna Jóhannsdóttir í leik með Stjörnunni árið 2021.
Garðabær Birna Jóhannsdóttir í leik með Stjörnunni árið 2021. — Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Knattspyrnukonan Birna Jóhannsdóttir er gengin aftur til liðs við uppeldisfélag sitt Stjörnuna frá HK. Birna er 23 ára gömul og getur leyst nokkrar stöður á vellinum. Ásamt því að leika með HK í 1. deild á síðasta tímabili lék hún með Álftanesi í 2. deild sumarið 2023. Þar á undan hafði hún leikið 40 leiki í efstu deild fyrir Stjörnuna og skorað í þeim fjögur mörk. Fyrstu leikina í efstu deild spilaði Birna sumarið 2016 þegar hún var aðeins 15 ára gömul.