Sindri Geir hafnaði uppstillingarnefnd tvisvar til þrisvar áður en hann ákvað að láta slag standa sem oddviti Vinstri grænna.

Hann segir að náttúruvernd beri reglulega á góma í samræðum við kjósendur og nefnir að VG vilji að eldi í opnum sjókvíum verði bannað eftir árið 2030.

„Það sem kannski kemur mér á óvart þegar ég er að tala við fólk og er á ferðinni er að náttúruverndin, hún skiptir fólk gríðarlegu máli,“ segir Sindri og bætir við:

„Það er alveg greinilegt að náttúruverndin, loftslagsmálin, orkumálin, þetta er eitthvað sem brennur á fólki hérna á svæðinu.“

Umhverfisvernd er helsta áherslumál hans í komandi kosningum.

„Við erum að horfa upp á það að eftir kosningar verði mögulega enginn

...