ÍR vann sinn fyrsta leik á tímabilinu í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í gær þegar liðið heimsótti Njarðvík í 7. umferð deildarinnar í Njarðvík en leiknum lauk með fimm stiga sigri ÍR, 101:96.
ÍR fer með sigrinum úr 12. og næstneðsta sætinu í 11. sætið og er nú með tvö stig en Njarðvík er sem fyrr í 3. sætinu með átta stig og hefur nú tapað tveimur leikjum í röð.
Njarðvík byrjaði leikinn betur og leiddi með 14 stigum í hálfleik, 54:40. ÍR-ingar sneru leiknum sér í vil í þriðja leikhluta og leiddu 73:71 að honum loknum. ÍR-ingar létu forystuna ekki af hendi eftir það.
Jacob Falko var stigahæstur hjá ÍR með 33 stig, tvö fráköst og 11 stoðsendingar en Dominykas Milka var stigahæstur hjá Njarðvík með 23 stig, 14 fráköst og
...