Bjarney Guðlaug Valdimarsdóttir fæddist 7. ágúst 1949 í Reykjavík.

Hún lést á krabbameinsdeild Landspítalans Hringbraut 30. október 2024.

Foreldrar hennar voru hjónin Sigríður Guðmundsdóttir, f. 12.4. 1913, d. 6.7. 1985 og Valdimar Kristjánsson, f. 5.2. 1911, d. 2.10. 1994.

Systkini Bjarneyjar voru Erla Kolbrún, f. 10.8. 1937, d. 3.1. 2011 og Sigurþór Gunnbjörn, f. 10.9. 1946.

Systir Bjarneyjar samfeðra var Unnur, f. 19.8. 1935, d. 31.12. 1959.

Eftirlifandi eiginmaður Bjarneyjar er Guðmundur Jóhannesson, f. 13.4. 1954.

Foreldrar hans voru hjónin Jóhannes Ágúst Guðmundsson frá Syðri-Þverá, f. 29.8. 1913, d. 19.7. 2004 og Auðbjörg Guðmundsdóttir

...