Knattspyrnumaðurinn Damir Muminovic hefur rift samningi sínum við Íslandsmeistara Breiðabliks. Þetta kom fram á heimasíðu KSÍ, Knattspyrnusambands Íslands. Fyrr í vikunni bárust fréttir af því Damir væri á leið til DPMM í Brúnei en liðið leikur í úrvalsdeildinni í Singapúr. Miðvörðurinn, sem er 34 ára gamall, hefur leikið með Breiðabliki undanfarin tíu ár og hefur hann tvívegis orðið Íslandsmeistari með liðinu á þeim tíma.