Tryggjum að eldri borgarar geti lifað áhyggjulausu og virku lífi.
Bessí Jóhannsdóttir
Bessí Jóhannsdóttir

Bessí Jóhannsdóttir

Sjálfstæðisflokkurinn hefur lengi sótt fylgi sitt til eldri borgara. Það hefur aldrei verið mikilvægara en nú að kjósendur í þessum hópi skili sér á kjörstað og merki X við D. Sjálfstæðisflokkurinn þarf að sækja fram, og við í Sambandi eldri sjálfstæðismanna (SES) og Félagi eldri sjálfstæðismanna í Reykjavík (FES-R) fögnum því að tekið hafi verið tillit til tillagna okkar í málefnum eldri borgara.

Sveigjanleg starfslok

Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á að eldri borgarar njóti ævikvöldsins með sjálfstæði og velferð að leiðarljósi. Við viljum tryggja fjárhagslegt sjálfstæði þeirra og gera þeim kleift að taka virkan þátt í samfélaginu eins lengi og þeir kjósa og hafa heilsu til.

Sjálfstæðisflokkurinn ætlar

...