Chuck Billy segir Hetfield hafa haft mikil áhrif á lagasmíðar sínar.
Chuck Billy segir Hetfield hafa haft mikil áhrif á lagasmíðar sínar. — AFP/Ethan Miller

Virðing Chuck Billy, oddviti Flóaþrassbandsins Testament, hefur lifað langan dag í málmi; svo langan að hann á aðeins eitt eftir – að túra með Metallica. Þetta upplýsir hann í samtali við hlaðvarpið Scars and Guitars. Böndin eru sprottin úr sama sverðinum og Billy kveðst líta mjög upp til James Hetfields, gítarleikara og söngvara Metallica. Hann veit ekki hvers vegna þetta hefur ekki gerst en vonandi rætist úr.