Ólafur Hauksson
Ólafur Hauksson

Ólafur Hauksson, almannatengill hjá Proforma og afi tveggja ára barns í leikskóla, hefur sent Kennarasambandi Íslands reikning vegna tekjutaps af völdum verkfalls kennara á leikskólum Seltjarnarness. Ólafur upplýsir þetta á facebook-síðu sinni.

„Reikningurinn er fyrir þann hluta af dagvinnutíma sem ég hef lagt af mörkum til að vera með tveggja ára afabarnið vegna þess að hún er útilokuð frá leikskólanum. Ég sinni henni með glöðu geði, en á meðan afla ég ekki tekna,“ ritar Ólafur en reikningurinn er upp á rúmar 300 þúsund krónur, byggður á útseldum taxta hans sem ráðgjafi í almannatengslum.

„Kennaraverkfallið er of vitlaust til að kyngja því andmælalaust. Þetta er ekki raunverulegt verkfall, heldur einhver furðuleg tilraun á kostnað minn og annarra. Verkfallið tekur aðeins til 3% leikskólakennara til að pressa á um kjarabætur fyrir 100%

...